EN

Gjafakort Sinfóníunnar

Með gjafakorti Sinfóníuhljómsveitar Íslands geta tónlistarunnendur á öllum aldri valið tónleika úr dagskrá Sinfóníunnar, t.d.  hátíðlega Vínartónleika, Harry Potter kvikmyndatónleika, Mahler nr. 3 eða hvað sem hæfir áhuga og smekk.

 

Kaupa gjafakort

Gjafakort Sinfóníunnar fást hér á vefnum og í miðasölu Hörpu. Þau eru tímalaus og renna ekki út.

Hægt er að prenta út rafræn gjafakort strax eða fá þau send heim sérstökum gjafaumbúðum Sinfóníunnar. Einnig má sækja kortin í miðasölu Hörpu. 

Miðasala Hörpu þjónar viðskiptavinum alla daga frá kl. 10-18 og í síma 528-5050 og midasala (hjá) harpa.is.

Afgreiðslutími miðasölu   Kanna stöðu gjafakorts

 

Aðrir skilmálmar

  • Með gjafakorti getur þú valið sæti hvar sem er í Eldborg, í öllum verðsvæðum. Handhafi gjafakorts velur tónleika og bókar miða á tónleika í miðasölu Hörpu.
  • Gjafakortið er tímalaus gjöf sem rennur ekki út.