EN

Barbara Hannigan og Mannsröddin

Tryggðu þér besta verðið með 20% afslætti með því að kaupa miða á ferna tónleika eða fleiri – Regnbogakort
Dagsetning Staðsetning Verð
5. apr. 2024 » 19:30 » Föstudagur Eldborg | Harpa 4.000 - 10.200 kr.

Barbara Hannigan snýr aftur í Eldborg til þess að flytja margrómaða konsertuppfærslu sína á Mannsröddinni, óperueinleik Francis Poulenc, með Sinfóníuhljómsveit Íslands. Einþáttungur Poulenc er byggður á leikriti Jean Cocteau og hverfist um síðasta símtal konu við elskhuga sinn eftir að hann hefur slitið sambandi þeirra til fimm ára. 

Á þessum einstaka listviðburði syngur Hannigan og stjórnar hljómsveitinni, auk þess sem myndbandsupptöku af hreyfingum hennar og svipbrigðum er varpað upp á tjald svo úr verður mikið sjónarspil. Auk Mannsraddarinnar stjórnar Barbara Hannigan hinsta tónaljóði Richards Strauss Metamorphosen sem tónskáldið samdi í lok síðari heimsstyrjaldar þegar ferill hans – rétt eins og menningarlíf álfunnar allrar – var rústir einar. Verkið er fyrir 23 manna strengjasveit, þrungið djúpum harmi og eftirsjá.

Barbara Hannigan hefur vakið feikilega aðdáun um heim allan undanfarin ár fyrir stórfenglegan söng en ekki síður fyrir hæfileika sína sem hljómsveitarstjóri. Hún hefur starfað með öllum helstu hljómsveitum heims, frumflutt yfir 85 ný tónverk og sungið í helstu óperuhúsum heims. Barbara Hannigan kom fyrst fram með Sinfóníuhljómsveit Íslands á Listahátíð vorið 2022 og sneri hún aftur strax vorið eftir. 

Hannigan hefur hlotið ótal verðlaun fyrir list sína, meðal annars Grammy-verðlaun fyrir plötuna Crazy Girl Crazy árið 2018 og hin virtu Léonie Sonning-verðlaun árið 2020. Þegar Rolf Schockverðlaunin féllu henni í skaut rökstuddi dómnefndin ákvörðun sína með þeim orðum að Hannigan væri „einstakur og framsækinn flytjandi sem nálgast tónlistina sem hún flytur með öflugum og lifandi hætti“. 

Íslenska þýðingu á Mannsröddinni gerði Kristján Þórður Hrafnsson og er henni varpað upp á tjald á tónleikunum.

*Tónleikarnir eru u.þ.b. 90 mínútur með tuttugu mínútna hléi.

Sækja tónleikaskrá