EN

Eldfuglinn

Litli tónsprotinn

Áskrift að tónleikaröð eða Regnbogakorti tryggir þér öruggt sæti á besta verðinu með 20% afslætti
Dagsetning Staðsetning Verð
4. maí 2024 » 14:00 » Laugardagur Eldborg | Harpa 2.900 - 3.500 kr.
Kaupa miða

Í heillandi ævintýrinu um Eldfuglinn segir frá Ívani prins, sem er hugrakkur með eindæmum, og risastórum fugli sem logar í alls konar rauðum og gulum litum rétt eins og sólin sjálf hafi tekið sér bólfestu í fjöðrum hans. Þetta er Eldfuglinn, eitt litríkasta hljómsveitarævintýri sem sögur fara af. 

Á þessum kraftmiklu tónleikum segir Halldóra Geirharðsdóttir tónleikagestum frá Eldfuglinum sem birtist í öllu sínu veldi, leyndarmálum skógarins, fjöregginu og gulleplunum. Myndum teiknarans Ara Yates, sem sýna Eldfuglinn dansa og svífa á milli greina töfratrjánna, verður varpað upp meðan á flutningi stendur.

Flautukór úr Tónlistarskóla Kópavogs leikur tónlist í Hörpuhorni fyrir tónleikana. Skapandi grímugerð stendur fuglavinum á öllum aldri til boða eftir tónleikana í Hörpuhorni.