EN

Steiney Sigurðardóttir

Sellóleikari

Steiney Sigurðardóttir er fædd árið 1996. Hún hóf sellónám 5 ára gömul hjá Örnólfi Kristjánssyni. Hún lauk framhaldsprófi vorið 2012 undir handleiðslu Gunnars Kvaran, aðeins 16 ára gömul. Frá áramótum 2013 til ársins 2015 var hún nemandi Sigurgeirs Agnarssonar við Listaháskóla Íslands og við Tónlistarskólann í Reykjavík þar sem hún útskrifaðist með burtfararpróf. Steiney hlaut styrk Halldórs Hansen fyrir framúrskarandi námsárangur og fyrir burtfararpróf sitt. Hún hóf nám 2016 í Tónlistarháskólanum í Trossingen í Þýskalandi þar sem hún lærði í fjögur ár undir handleiðslu Prof. Francis Gouton.

Steiney hefur leikið einleik með Hljómsveit Tónlistarskóla Reykjavíkur, Sinfóníuhljómsveit unga fólksins, Kammersveit Reykjavíkur og Sinfóníuhljómsveit Íslands. Árið 2019 vann Steiney stöðu uppfærslumanns leiðara í sellódeild Sinfóníuhljómsveitar Íslands og hefur gengt þeirri stöðu síðan. Steiney er virk í tónlistarlífinu hérlendis og spilar reglulega með kammerhóp sínum Dúó Eddu og með kammersveitinni Elju. Steiney hlaut verðlaun sem bjartasta vonin á Íslensku tónlistarverðlaununum 2020. Sama ár hlaut hún einnig styrk Léonie Sonning fyrir ungt hæfileikaríkt tónlistarfólk.